I do
Dvergurinn er genginn út. Hann fékk bónorð í morgun, sem hann játaðist að vel ígrunduðu máli. Giftingin verður aðra helgina í ágúst og veislan verður sú stærsta í manna minnum, þó gestirnir verði smáir. Brúðkaupsferðin fylgir strax í kjölfarið þar sem börnin verða búin til. Hveitibrauðsdagarnir verð svo 9 mánuðir. Kaup á húsi með bílskúr, station-bíl og barnavagni eru þegar í bígerð. Nafni tilvonandi hr. Lesstofudvergs, verður ekki gefið upp að svo stöddu.
Dvergar eru líka menn!
3 Comments:
Hey kommon! ég er systir þín og þarf að frétta þetta í fjölmiðlunum!!! þó þú sért dvergaseleb þá er ég samt systir þín!!!
Mjög reynd brúðarmeyja í boði í brúðkaupið.. bleikur fer mér einstaklega vel og einnig að vera með risastóra bleika slaufu á rassinum ;)
TIL HAMINGJU!!!
Post a Comment
<< Home