Lesstofudvergur í Leuven

Wednesday, March 15, 2006

Fræðimenn

Munurinn á ungum og "heldri" fræðimönnum liggur einna helst í því að ungir fræðimenn flagga skoðunum sínum óhræddir og hafa ALLTAF rétt fyrir sér. Amatures? Maður spyr sig.
Munurinn á því að hlusta á Karl Axelsson tala um frumvarp og umræður á Alþingi til nýrra vatnalaga og á því að hlusta á Eggið tala um slíkt hið sama er ekki sambærilegt.
KAX tók þann pólinn að brydda sjálfur upp á umræðunum og svara öllum þeim spurningum sem brunnu á vörum nemenda með ró og röksemdafærslu. Á báða bóga, kostir og gallar voru metnir án þess að hin "eina rétta niðurstaða" væri fengin. Enda hefur það sýnt sig að hún verður seint fundin.
Eggið ákvað hinsvegar að minnast á nýju vatnalögin í framhjáhlaupi við yfirferð í veðréttartíma í augljósri von um að nemendur myndu spyrja hann spjörunum úr og heitar umræður um málefnið hefðust. Ekkert endilega í samhengi við kennsluefni dagsins í dag en hann var bara svona aðeins að minnast vatnalögin. Álíka og örstutt um ógildingu hérna um árið... Úr einu í annað eins og hann orðaði það. Egginu tókst að halda sjálfstjórn allan fyrsta tíma, minntist ekki nema frumvarpið nema 2-3 um leið og hann muldraði nokkur niðrandi orð í garð fáfróðra stjórnarandstæðinga sem greinlega vita ekki betur en að vera á móti öllu sem hann (Eggið) gerir. Þetta bara hlýtur að vera persónulegt.
En sjálfstjórnin var nú ekki meiri en það að ekki voru liðnar nema rétt tæpar 10 mínútur af síðari tímanum, n.t.t. 09.25 að staðartíma, að hann missti "kúlið" (ef kúl má kalla... hann er jú óttalegt neeerd) og hélt u.þ.b. 20 mínútna fyrirlestur um ágæti frumvarps til nýrra vatnalaga (hann samdi það jú) og að eignaréttur að vatni, eins og hann er skilgreindur í nýju lögunum er meiriháttar. Inní þessa umræðu kom hann að sjálfsögðu þónokkrum gamansögum af bóndum í Serbíu og öðrum sketsum. Háð og spott voru í hávegum höfð og að sjálfsögðu var hin eina rétta niðurstaða fljótt fundin.
Án þess að taka afstöðu til þess hvort nýja frumvarpið til vatnalaga er "meiriháttar" eða ekki kýs ég frekar að ræða málið við Kax í framtíðinni.
Ekkert á móti Egginu samt, hann nú á sínar góðu stundir. Neerd eru jú dáldið "in" at the moment. Ég vil gjarnan telja mig eitt slíkt þessa dagana.

4 Comments:

At 12:18 PM, Anonymous Anonymous said...

þú veist að "nemendur eru eins og vatnið..." (c)ET.

 
At 12:59 AM, Blogger Rannveig said...

ég sakna Eggsins pínulítið bara..aðeins of langt síðan orðið
"ólöglærðir" var notað í tíma hjá okkur!

 
At 1:20 AM, Anonymous Anonymous said...

það er bara verið að reyna að einkavæða vatnið! (sagt með vælandi rödd)

 
At 8:15 PM, Blogger Halli said...

Samt gott að þú rökstyður háðglósur þínar í garð eggsins, ólíkt sumum kyn-systra þinna.

Ég var einu sinni nörd, það er bara fínt. En það er slæmt að vera lúði.

 

Post a Comment

<< Home