Lesstofudvergur í Leuven

Sunday, December 05, 2004

Í tilefni jólanna

Hef ég framið ritstuld. Ég passaði mig samt á því að láta ritstuld þennan bitna á ólögfróðum vinkonum mínum (sem eru allar yndislegar) svo að ég lendi ekki í klandri lagalega séð. Eftirfarandi er eitthvað sem allir ættu að geta haft gaman af (nema þó kannski stúkumenn, og ráðlegg ég þeim því að lesa ekki lengra og vonandi rata þeir ekki aftur inn á þessa síðu því hérna eru einungis ritaðir pistlar stórdrykkjumanneskju um aðrar stórdrykkjumanneskjur). Áður en þið hefjið lesturinn vil ég að þið raulið jólalagið úr Egils malt og appelsín auglýsingunni þar sem litla stelpan er að baka piparkökur og syngja. Syngið svo sama lagið með þessu texta:

Jólalag
Skín í væna vínflösku,
Og huggulega bjóra.
Jólaglögg og eplasnafs,
allt það ætl'að þjóra.
Dufla og daðra og leika mér,
látum ill'í desember.
Burt með sokk og skó,
hér af vín'er nóg.
Ó hvað ég elska jólin
von'ég hitt'á stólinn.

Ef einhver kann annað vers, endilega flengið því í comment!


Wednesday, December 01, 2004

Hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað??

Ja, hérna, það er eins gott að maður gengur undir dulnefni meðal samnemenda sinna: ergo Lesstofudvergurinn/Dvergurinn.
Hver er annars þessi Vala á þriðja ári?? sbr. http://www.disunadur.blogspot.com/
Talandi um sækó!
Veriði dugleg að læra ;)